150 milljónir í styrki til að fjölga óstaðbundnum störfum á landsbyggðinni

Blábankinn á Þingeyri.

Innviðaráðherra hefur ákveðið að veita styrki, að fjárhæð allt að 150 milljónum kr. af byggðaáætlun, til að fjölga óstaðbundnum störfum á landsbyggðinni.

Ríkisstofnanir á höfuðborgarsvæðinu eiga kost á að sækja um styrki til að ráða í óstaðbundin störf á þeirra vegum utan höfuðborgarsvæðisins, m.a. til að mæta kostnaði við aðstöðu fyrir starfsfólk.

Málið var kynnt á ríkisstjórnarfundi í gær og voru ráðherrar hvattir til að nýta tækifærið til að fjölga opinberum störfum á landsbyggðinni.

Styrkir vegna óstaðbundinna starfa verða auglýstir í haust. Ríkisstofnanir sem staðsettar eru á höfuðborgarsvæðinu geta sótt um styrk vegna starfa sem ráðið verður í utan þess svæðis og er þeim ætlað að koma til móts við ferðakostnað og leigu á aðstöðu í vinnustaðaklösum.

Veita má styrk til stofnunar vegna starfs til allt að þriggja ára. Hámarksstuðningur við hvert starf getur numið allt að 2 milljónum króna á ári.

Byggðastofnun mun annast umsjón með úthlutun styrkja og gerð samninga og verður árangur af verkefninu metinn fyrir lok árs 2025.

DEILA