Fyrirtækið Baader Skaginn 3X á Akranesi óskaði eftir því við dómara í gær að verða tekið til gjaldþrotaskipta og munu 128 starfsmenn fyrir vikið missa vinnuna.
Þetta staðfestir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, við mbl.is.
Það var í ágúst á síðasta ári sem öllum 27 starfsmönnum Skagans 3X á Ísafirði var sagt upp störfum og starfsstöðinni lokað og sameinuð þeirri á Akranesi.
Skaginn 3X er í eigu þýska félagsins Baader, sem sérhæfir sig í matvælavinnslu. Þýska félagið eignaðist Skagann 3X fyrir fáum árum síðan.