Eins og undanfarin ár verða veittir styrkir úr Menningarsjóði vestfirskrar æsku til framhaldsnáms sem vestfirsk ungmenni geta ekki stundað í heimabyggð sinni. Að öðru jöfnu njóta eftirtaldir forgangs um styrk úr sjóðnum:
- Ungmenni sem misst hafa fyrirvinnu, föður eða móður.
- Einstæðar mæður.
- Konur, meðan fullt launajafnrétti er ekki í raun.
- Ef engar umsóknir eru frá Vestfjörðum, koma umsóknir Vestfirðinga búsettum annars staðar til greina.
Félagssvæði Vestfirðingafélagsins er Ísafjarðarsýslur, Ísafjörður, Stranda- og Barðastrandasýslur.
Umsóknir skulu sendar fyrir lok júlí mánaðar 2024 til Menningarsjóðs vestfirskrar æsku c/o Heiða Jóna Hauksdóttir, Digranesheiði 34, 200 Kópavogur og skal umsögn fylgja frá skólastjóra og/eða öðrum sem þekkja viðkomandi nemanda, efni hans og aðstæður.
Einnig má senda umsóknir á netfangið: hjhauks@gmail.com
Á síðasta ári voru veittir styrkir til tveggja ungmenna frá Vestfjörðum.
Í stjórn sjóðsins eru: Heiða Jóna Hauksdóttir, Sigurður H. Magnússon og Sigrún Edda Hauksdóttir.