Hafrannsóknarstofnun telur að hrygningarstofn villta laxsins við Íslands hafi verið í haust um 20 þúsund laxar að afloknum veiðitíma. Það er einn minnsti hrygningarstofn sem mælst hefur og töluvert undir meðaltali aftur til ársins 1971, sem er tæplega fjörutíu þúsund laxar. Stofnunin kynnti þetta mat sitt á aðalfundi Landssambands veiðifélaga sem haldinn var í Húsafelli síðari hluta aprílmánaðar á þessu ári. Morgunblaðið greindi frá þessu 13. maí sl.
Þrátt fyrir þetta mat stofnunarinnar gerir hún ekki neinar tillögur um veiðar eða veiðiálag.
Í yfirliti yfir lax- og silungsveiði fyrir 2023, sem er að finna á vef Hafrannsóknarstofnunar kemur fram að alls veiddust 36.538 laxar á síðasta ári. Á stöng veiddust 32.726 og 3.812 voru veiddir í net. Alls var 20.557 löxum sleppt aftur en 15.981 laxar voru skráðir sem afli, þ.e. voru drepnir.
Fjöldi laxa sem sleppt var jafngildir öllum hrygningarstofninum og fjöldinn sem kom á land er jafngildir um 80% af hrygningarstofninum.
Fiskeldi stangveiðimanna skilar 22% laxanna
Athygli vekur að hafbeit, sem er árangur af fiskeldi í tilteknum ám og veiðin byggir á sleppingum gönguseiða, skilar 7.061 lax af alls 32.726 löxum veiddum á stöng. Það gerir um 22% af fjöldanum.
Mismunurinn, sem er 25.665 laxar eru villtir laxar veiddir á stöng.
Ekki eru gefnar frekari upplýsingar um laxanna sem veiddir voru í net annað en að nær allir voru veiddir í Þjórsá, Ölfusá og Hvítá. Ef gert er ráð fyrir að þeir hafi allir verið villtir þá veiddust 29.447 villtir laxar á síðasta ári. Ljóst er að veiði á villtum laxi var rúmlega hrygningarstofninn og jafnvel allt að 150% af stærð stofnsins.
16 þúsund laxar drepnir
Fram kemur einnig í yfirliti Hafrannsóknarstofnunar um veiðina í fyrra að samtals var 15.981 lax drepinn. Það sundurliðast þannig að 7.417 lax eru skráðir villtur lax, 4.752 laxar voru hafbeitarlaxar og svo 3.812 laxar veiddir í net. Að því gefnu að netaveiddu laxarnir hafi verið villtir laxar þá voru 11.229 villtir laxar drepnir sem er um 55% af metinni stærð hrygningarstofnsins.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2024/07/Hafro_lax_hrygningarstofn_1491382-1024x687.jpg)
Metinn hrygningarstofn villta laxins er græna lína. Síðastliðið haust um 20 þúsund fiskar. Meðaltal áranna er sýnt með brotnu línunum. Bláa línan er heildar ganga og sú appelsínugula afli. Línurit/Hafrannsóknastofnun