Fyrirhugað er að leggja fram frumvarp á haustþinginu um kílómetragjald vegna notkunar ökutækja á vegakerfinu sem komi til framkvæmda þann 1. janúar 2025.
Með frumvarpinu er áformað að greitt verði kílómetragjald fyrir notkun allra ökutækja í vegakerfinu eftir fjölda ekinna kílómetra í samræmi við þyngd ökutækja óháð því í hvaða flokki ökutækið er í.
Lagt er til að kílómetragjald verði föst krónutala fyrir hvern ekinn kílómetra af ökutækjum með leyfða heildarþyngd 3.500 kg. eða minna, en fyrir liggur að þau ökutæki valda almennt áþekku vegsliti.
Ef leyfð heildarþyngd ökutækis er umfram 3.500 kg. mun fjárhæð kílómetragjalds taka mið af heildarþyngd út frá útreikningi á tilteknum þyngdarstuðli. Gjaldið fer því hækkandi með aukinni þyngd tækisins.
Kílómetragjaldið á að koma í stað olíu- og bensíngjalda sem eru greidd við kaup á jarðefnaeldsneyti. Þau gjöld verða felld á brott samhliða upptöku kílómetragjaldsins.
Gjaldið á að greiða mánaðarlega út frá áætlun um meðalakstur á mánuði og gert upp þegar ný kílómetrastaða ökutækis er skráð á Ísland.is eða hjá faggiltri skoðunarstofu.
Innheimta gjaldsins verði þannig með áþekkum hætti og tíðkast fyrir orkureikninga veitufyrirtækja.