Golf: Íslandssögumótið á laugardaginn

Af golfvellinum í Tungudal. Mynd: Benedikt Hermannsson.

Á laugardaginn kemur fer fram mót í sjávarútvegsmótaröðinni, Íslandssögumótið.

 Íslandssaga á Suðureyri heldur upp á 25 ára afmæli um þessar mundir og í tilefni af því mun Íslandssaga færa Krabbameinsfélaginu Sigurvon styrk eftir árangri kylfinga í mótinu.  Hefur Íslandssaga heitið á kylfinga og mun greiða

10.000 kr. fyrir hvern fugl.

50.000 kr. fyrir hvern örn.

100.000 kr. fyrir holu í höggi.

Kylfingar eru hvattir til þess að skrá sig tímanlega, skráning á golfbox.

Um liðna helgi fóru fram tvö mót í sjávarútvegsmótaröðinni, Oddamótið á Patró og Arnarlaxmótið á Bíldudal.

Í Oddamótinu á Patreksfirði voru 40 keppendur, sem verður að teljast mjög góð þátttaka. Sigurvegari varð Viktor Páll Magnússon frá Golfkúbbi Ísafjarðar.

Á Arnarlaxmótinu á Bíldudal voru 16 keppendur. Þar varð hlutskörpust Hrafnhildur Sigurðardóttir frá Golfkúbbnum Leyni.

Úrslit í mótunum má finna hér:

Oddamótið

Arnarlaxmótið

DEILA