Gjögur­viti rifinn og annað vitaljós sett upp

Gjögurviti féll á hliðina í hvassvirði síðasta vetur.

Gjögurviti á Gjögri á Ströndum féll í hvassviðri í desember 2023 en ástand járnagrindar vitans var orðið bágborið. Starfsfólk Vegagerðarinnar fjarlægði brak úr vitanum í byrjun júlí en til stendur að reisa annað vitaljós á sama stað fyrir lok sumars.

Starfsmenn á vegum Vegagerðarinnar bútuðu stálgrind vitans niður á dögunum til að hægt væri að fjarlægja brakið.

Gjögurviti var 24 metra hár stálgrindarviti sem reistur var á Gjögri á Ströndum árið 1921. Hann var aflfæddur frá rafveitu og rafgeymar notaðir til vara. Hlutverk hans var að merkja í hvítu ljósi öruggar og fullnægjandi siglingaleiðir, en rauð og græn ljóshorn vitans merktu hættuljós yfir sker og boða.

Kristinn Hauksson, forstöðumaður tækjadeildar Vegagerðarinnar, upplýsir að í stað vitans komi 24 m hátt mastur. „Á toppi mastursins verður fest LED vitaljós sem mun sinna sömu þörfum og gamli vitinn,“ segir Kristinn.

Mastrið er á leið til landsins en stefnt er að því að setja það upp fyrir lok sumars. Kristinn segir aðstöðuna til framkvæmda á staðnum góða og hægt að koma að bæði krana og steypubíl til að setja upp nýja mastrið. Þá verði allt viðhald mun einfaldara en áður.

„LED ljósin þarf nánast aldrei að skipta um ólíkt því sem var með eldri perurnar í gamla vitanum,” segir Kristinn og bætir við að vitaljósið, radarsvari og annar búnaður vitans verði hér eftir í beinni vöktun frá höfuðstöðvum Vegagerðarinnar. „Við getum þá brugðist við bilunum fljótar en hefur verið hingað til.”

Gjögurviti var 24 metra hár stálgrindarviti sem reistur var á Gjögri á Ströndum árið 1921.

DEILA