Hafrannsóknastofnun hefur komið fyrir laxateljara í fiskveginn við Einarsfoss í Laugardalsá við Ísafjarðardjúp.
Teljarinn er búinn myndavél sem tekur myndir af fiskum sem ganga í ána.
Auk þess að greina fjölda villtra fiska er mögulegt að greina hvort að um eldisfiska sé að ræða.
Þær upplýsingar sem fást með teljaranum er m.a. nýttar í þeirri vöktun sem tengist áhættumati erfðablöndunar.
Teljarinn er settur niður snemmsumars og tekinn upp að hausti.