Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur veitt Hval hf. veiðileyfi til veiða á langreyðum.
Leyfið gildir fyrir veiðitímabilið 2024 og verður leyfilegt veiðimagn 99 dýr á svæðinu Grænland/Vestur-Ísland og 29 dýr á svæðinu Austur-Ísland/Færeyjar eða samtals 128 dýr.
Frá þessu greinir Stjórnarráðið í tilkynningu.