Sveitarstjórnarkosnngar fara fram í dag í nýju sameinuðu sveitarfélagi Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps. Samhliða fara fram kosningar í fjórR heimastjórnir. Kosið verður á fjórum stöðum.
- Patreksfjörður – Kosið í Félagsheimili Patreksfjarðar (FHP) Kjördeildin opnar kl. 10:00.
- Bíldudalur – Kosið í félagsheimilinu Baldurshaga Kjördeildin opnar kl. 12:00.
- Krossholt – Kosið í Birkimelsskóla á Barðaströnd. Kjördeildin opnar kl. 12:00.
- Tálknafjörður – Kosið í Tálknafjarðarskóla. Kjördeildin opnar kl. 10:00.
Íbúar fyrrum Rauðasandshrepps eru skráðir í kjördeildinni á Patreksfirði.
Kjörfundi skal lokið eigi síðar en kl 22. Ljúka má kjörfundi fyrr ef allir sem á kjörskrá standa hafa greitt atkvæði og eftir fimm klukkustundir ef öll kjörstjórnin og umboðsmenn eru sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.
Tveir framboðslistar eru boðnir fram, D listi Sjálfstæðisflokksins og óháðra og N listi Nýrrar sýnar.
Allir íbúar hvers svæðis eru í framboði til heimastjórnar og kýs hver íbúi einn einstakling á því svæði sem hann býr.
Talning atkvæða úr sveitarstjórnarkosningunum fer fram í Félagsheimili Patreksfjarðar laugardaginn 4. maí og opnar talningarstaður kl. 21:00. Einnig verða atkvæði í heimastjórnarkosningunum talin á sama stað á sama tíma. Hægt er að fylgjast með talningunni á staðnum og verða úrslit í öllum kosningunum kynnt að talningu lokinni.