Einstaklingar geta kannað kjörgengi og hvar þeir eiga að kjósa í komandi forsetakosningum laugardaginn 1. júní með rafrænum hætti.
Ekki er flett upp í þjóðskrá heldur er flett upp í kjörskrárstofni. Að kjördegi loknum verður lokað fyrir aðgang að uppflettingunni.
Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn, lögheimili og sveitarfélag. Einnig birtast upplýsingar um kjörstað og kjördeild.
Flutningur lögheimils eftir viðmiðunardag 24. apríl, breytir ekki skráningu á kjörskrá.