Á opnunarhátíð Reykjavík Cocktails Weekend fór fram kynning á líkjör sem kemur úr herbúðum Hovdenak Distillery ehf. og ber heitið Þristalíkjör.
Það er sælgætisgerðin Sambó sem framleiðir þjóðþekktu vöruna Þristur og Mjólkurvinnslan Arna í Bolungarvík með laktósalausu mjólkina sína sem leggja til hráefni í þennan nýja Þristalíkjör sem mun koma á markaðinn síðar á þessu ári.
Það er búið að rigna yfir okkur símtöl, tölvupóstur og skilaboð á Facebook og Instagram miðlunum eftir að við frumsýndum vöruna í Hörpunni á miðvikudaginn síðastliðinn á opnunarhátíð Reykjavík Cocktail Weekend segir Hákon Freyr Hovdenak hjá fyrirtækinu Hovdenak Distillery ehf.