Í kvöld er fyrsti leikur í úrslitaviðureign Körfuknattleiksdeildar Vestra og KV í meistaraflokki karla. Leikurinn er kl 20.00 í Jakanum, Íþróttahúsinu á Torfnesi, Ísafirði.
Í úrslitaviðureigninni er leikið um Íslandsmeistaratitilinn í 2. deild. Liðið sem fyrr vinnur tvær viðureignir vinnur sér rétt á að fara upp í fyrstu deild. Næsti leikur er svo útileikur á Meistaravöllum í Reykjavík á mánudaginn.
Vestri hefur mætt KV í tveimur leikjum í vetur og vann þá báða. Leikirnir voru skemmtilegir og jafnir enda liðin nokkuð jöfn að getu.
Tímabilið hefur verið gott hjá KKD Vestra og enduðu þeir deildakeppnina í efsta sæti annarrar deildar.
Ljóst er að það verður spennandi leikur í kvöld og vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta og að styðja við bakið á liðinu.