Sameining Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar í eitt sveitarfélag hefur verið staðfest af innviðaráðuneytinu og munu sveitarstjórnarkosningar fara fram í nýju sveitarfélagi 4. maí næstkomandi.
Landskjörstjórn vill vekja athygli á stuttum frestum fyrir kosningarnar:
- Frestur fyrir umsóknir námsmanna búsetta á Norðurlöndunum til að fá að kjósa er til 25. mars nk. Umsóknum er beint til Þjóðskrá Íslands, sjá nánar hér: https://skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/kjorskra/namsmenn-a-nordurlondum/
- Frestur til að skila inn framboðslistum til yfirkjörstjórnar sveitarfélagsins er til kl. 12 á hádegi 29. mars nk.
- Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst 5. apríl á skrifstofum sýslumannsembættanna og í sendiráðum erlendis.