Í síðustu viku á Degi leikskólans, var ný viðbygging við leikskólann Araklett á Patreksfirði formlega opnuð og er nú pláss fyrir 60 börn á leikskólanum.
Viðbyggingin markar tímamót hvað varðar starfsemi leikskólans þar sem samhliða því að viðbyggingin var tekin í notkun voru gerðar miklar breytingar á starfsemi leikskólans. Allt skipulag starfseminnar var endurskoðað, breytingar hafa orðið á deildarskipan, aukið hefur á fjölbreytileika rýmanna, gert er ráð fyrir sérkennslurými, starfsmannaaðstaða hefur verið bætt og fleira sem gerir það að verkum að rýmin á Arakletti uppfylla nú gæðaviðmið um húsakost leikskóla. Á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins Vesturbyggðar þetta árið er einnig gert ráð fyrir að halda áfram viðhaldi á eldra húsnæði og nauðsynlegum endurbótum á lóðinni eftir framkvæmdirnar.
Rausnarlegar gjafir frá Lions, Odda hf og einstaklingum í nærsamfélaginu bárust, sem Bergdís Þrastardóttir, leikskólastjóri þakkar fyrir og segir hún að ekki muni líða á löngu áður en leikskólinn mun einnig uppfylla gæðaviðmið um námskost.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2024/02/Araklettur_24_Oddi.jpg)
Vegleg gjöf frá Odda hf sem Skjöldur Pálmason afhenti.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2024/02/Ararklettur_24_c.jpg)
Myndir: Vesturbyggð.