Í Stjórnartíðindum er auglýst veiðigjald fyrir árið 2024. Gjaldið miðast hvert kíló óslægðs afla sem landað er á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2024.
Tegundum sem bera veiðigjald hefur fækkað um þrjár frá í fyrra, úr 21 í 18. Þær tegundir sem hafa dottið út eru grálúða, gulllax og rækja.
Veiðigjald á þorski hækkar um tæp 40% en veiðigjal á makrí og loðnu lækkar verulega.
Veiðigjald fyrir hvern hval er: i) langreyður 70.174 kr., ii) hrefna 11.228 kr.
Veiðigjald á sjávargróður er : 702 kr. á hvert landað tonn klóþangs, hrossaþara og stórþara (blautvigt).
Við álagningu veiðigjalds skal frítekjumark nema 40% af fyrstu 8,5 milljónum.6 millj. kr. álagningar hvers árs hjá hverjum gjaldskyldum aðila.
Innheimtumenn ríkissjóðs innheimta veiðigjald og fer ríkisskattstjóri með samræmingar- og eftirlitshlutverk við innheimtu þess. Veiðigjald telst rekstrarkostnaður samkvæmt lögum um tekjuskatt.