Í október bauð Vegagerpin út smíði tveggja steinsteyptra eftirspenntra 34 metra plötubrúa yfir Fjarðarhornsá og Skálmardalsá, ásamt vegagerð við hvora brú fyrir sig, samtals um 1,8 kílómetrar. Brýrnar eru beggja vegna Klettsháls.
Þegar tilboð voru opnuð þann 7. nóvember átti Eykt ehf. í Reykjavík lægsta tilboðið, krónur 1.129.936.429. Var það 57% yfir áætluðum verktakakostnaði, sem var krónur 718.371.378. Tilboð frá Ístaki og Íslenskum aðalverktökum voru enn hærri.
Vegagerðin hefur nú ákveðið að hafna öllum tilboðunum og er verkið boðið úr aftur með tilboðsfresti til 19. desember. Verkinu á að ljúka fyrir 1. desember 2025.