Íbúum á Patreksfirði gafst síðasta sumar kostur á að skreyta grænar ljósastauraruslatunnur, hver með sínu nefi.
Ímyndunaraflið mátti ráða för, til dæmis mála þær eða hekla, sauma eða prjóna utan um þær.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2023/12/Ruslatunna.jpg)
Nemendur á mið- og unglingastigi í Bíldudalsskóla tóku sig til á dögunum og skreyttu grænar ruslatunnur þar í bænum.
Skreytingarnar eru liður í samfélagsverkefni skólans og glæða bæinn svo sannarlega lífi.