Þann 8. desember sl. tók gildi breyting á reglugerð nr. 830/2022 um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Með breytingunni var brennum, stærri en 100 m3, bætt í listann yfir skráningarskyldan atvinnurekstur. Meðal starfsemi sem er skráningarskyld eru flugeldasýningar. Því fellur fyrri auglýsingarskylda niður.
Skráningin tekur gildi þegar:
- Skráning hefur farið fram
- Skráningargjald hefur verið greitt
- Rekstraraðili hefur fengið senda staðfestingu frá heilbrigðisnefnd
Frekari leiðbeiningar um hvaða reglur gilda um skráningarskyldan atvinnurekstur veita heilbrigðiseftirlitin en þau hafa eftirlit með starfseminni, þ. á m. að starfsemin sé rétt skráð.
Einnig þarf að sækja um leyfi fyrir brennum hjá sýslumanni og fyrir flugeldasýningum hjá lögreglustjóra