SVONA TALA ÉG – útgáfuhóf á Bókasafninu á Ísafirði

Fögnum saman „Svona tala ég“ nýjustu barnabók eftir Helen Cova með útgáfuhófi á Bókasafninu Ísafirði 2 desember kl. 14:00-16:00.

Börnin geta litað, leikið sér og hlustað á höfundinn lesa úr bókinni. Það verða léttar veitingar í boði og bókin á útgáfutilboði.


Um bókina:
Þessi bók kennir ekki aðeins börnum um fegurð íslenskrar tungu, heldur ber hún líka sterk skilaboð um umburðarlyndi og skilning fyrir þau sem eru að læra hana. Með sögu Simonu læra íslensk börn hvað tungumál okkar er mikilvægt, fallegt, sérstakt og hve flókið það getur verið. Börnin læra líka að meta og virða námsferli innflytjenda og auka samúð og þátttöku í samfélaginu okkar.

Nýir Íslendingar sem eru að flytja til Íslands og eru að læra tunguna munu sjá sjálfa sig og fá félaga í sögunni um Simonu, finna innblástur og huggun í þeirra ferli. Með töfrandi myndum og innblásandi sögu, eflir „Svona tala ég“ menningarlega fjölbreytni, eykur ástina á íslenskunni og sýnir hvernig samskipti og tengingar geta rofið hindranir og sameinað fólk.

Þessi bók er ómissandi fyrir þá sem vilja stuðla að samþættingu og virðingu fyrir öllum börnum, sama hvaða uppruna þau hafa eða hvaða hreim þau tala íslensku með. „Svona tala ég“ minnir okkur á að hver rödd er einstök og hvað við erum öll heppin að geta talað íslensku.

Um höfundinn:
Helen Cova er rithöfundur og núverandi forseti Ós Pressunnar. Fyrsta barnabók hennar, „Snúlla finnst gott að vera einn“, kom út árið 2019 á íslensku, ensku og spænsku. Önnur bók hennar, smásagnasafn fyrir fullorðna „Sjálfsát: Að éta sjálfan sig“, kom út árið 2020 á íslensku og ensku. Þriðju bókinni sinni (aðra barnabók) kom út af Karíba útgáfan í Október 2022 og heitir „Snúlla finnst erfitt að segja nei“. Einnig er hún að gefa út nú fyrir jól ljóðabókina „Ljóð fyrir klofið hjarta“

DEILA