Skipulagstillögur í landi Hveravíkur

Sveitarstjórn Kaldrananeshrepps hefur auglýst tillögu að breytingu á aðalskipulagi hreppsins 2010-2030 sem felst í að skilgreina 23 ha frístundabyggð í landi Hveravíkur fyrir 6 frístundahús á landbúnaðarsvæði sem minnkar samsvarandi.

Einnig er 2,43 ha verslunar- og þjónustusvæði fært og því skipt upp í svæði fyrir verslun- og þjónustu og athafnasvæði.

Tillögurnar eru aðgengilegar í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar og er þar hægt að skila inn skriflegum athugasemdum á kynningartímanum sem er til 22 desember 2023.

DEILA