Kostnaður Vegagerðar ríkisins af rekstri vega og jarðganga á Vestfjörðum var að meðaltali 750 m.kr. á ári síðustu sex ár. Til viðbótar kemur svo kostnaður af rekstri Breiðafjarðarferjunnar Baldurs sem verður samkvæmt nýgerðum samningi 612 m.kr. á ári. Samanlagt er rekstrarkostnaðurinn 1.362 m.kr. á ári. Þar af er kostnaðurinn við Baldur 45%. Gert er ráð fyrir 305 ferðum milli Stykkishólms og Brjánslækjar og 114 í Flatey árlega.
Athuga ber að tölur fyrir 2023 eiga eftir að hækka þar sem árið er ekki liðið.
Upplýsingar um kostnað eru fengnar frá Vegagerðinni.
Rekstrarkostnaður við jarðgöng m.kr. | ||||||
Ár | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 |
Rekstur | 50 | 48 | 48 | 71 | 78 | 67 |
Rekstrarkostnaður við vegi m.kr. | ||||||
Ár | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 |
Rekstur | 634 | 565 | 823 | 637 | 860 | 620 |