Reykhólahreppur ræður umsjónamann framkvæmda og uppbyggingar

Fyrir skömmu hóf störf hjá Reykhólahreppi, Hrafnkell Guðnason.

Hann var ráðinn til starfa við umsjón framkvæmda og uppbyggingar hjá sveitarfélaginu.

Hrafnkell er viðskiptafræðingur með gráðu í alþjóðlegum viðskiptum. Hann var áður atvinnuráðgjafi hjá samtökum sveitarfélaga á Suðurlandi.

Hann er Flóamaður, frá Glóru í Flóahreppi, áður Hraungerðishreppi.

Hrafnkell er með starfsaðstöðu á skrifstofu Reykhólahrepps.

DEILA