Opnar lögmannsstofu á Ísafirði

Lagastoð lögfræðiþjónusta hefur opnað starfstöð á Ísafirði og veitir Vestfirðingum alla almenna lögmannsþjónustu. Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir lögmaður, sem veitir skrifstofunni forstöðu, verður með erindi í dag fimmtudag, 16. nóvember kl. 12.00 í „skúrnum“ hjá Húsinu, þar sem hún fjallar meðal annars um erfðamál, fyrirframgreiddan arf, kaupmála, setu í óskiptu búi , sérstakar áskoranir í samsettum fjölskyldum og fleira. Eftir erindið verða umræður þar sem gefst kostur á fyrirspurnum.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

www.lagastod.is

DEILA