Nettó: mun yfirfara verðið á kringlunum

Heiðar Róbert Birnuson, rekstrarstjóri Nettó segir það rétt sem fram kom í frétt Bæjarins besta í gær kringlurnar eru framleiddar á Ísafirði og bætir því við að Nettó selji þær aðeins þar.

„þarna höfum við eitthvað sofnað á verðinum með þessa vöru og þurfum að yfirfara verðin á henni og í leiðinni skoða aðrar vörur frá viðkomandi birgja.“ segir í skriflegu svari Heiðars.

Poki með 5 kringlum fengust bæði í Nettó og í Bónus og var verðið í Nettó 1.049 kr. en 698 kr. í Bónus.

DEILA