Mikill verðmunur á mjólkurvörum – Krambúðinni og 10-11 með hæstu verðin

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á mjólkurvörum þann 25. október síðastliðinn.

Verð voru athuguð í tíu verslunum og voru alls 318 vörur teknar til greina. Einnig voru borin saman verð á fimm undirflokkum: mjólk og rjómi, vegan vörur, smjör og ostar, jógúrt og AB mjólk, og skyr. Í öllum tilfellum var verðlag hæst í 10-11 og Krambúðinni og lægst í Bónus og Krónunni. 

Verðlag er reiknað með því að taka meðaltalsfjarlægð frá lægsta verði hverrar vöru fyrir sig, og endurspeglar hversu mikið hærra verð á vöru er að meðaltali frá þeirri verslun þar sem hún var ódýrust. 

Verðlag var lægst í Bónus, 0,4% frá lægsta verði þegar allar vörur eru skoðaðar, og lægst í öllum undirflokkum. Það var hæst í 10-11, 66% frá lægsta verði þegar allar vörur eru skoðaðar, og hæst í öllum undirflokkum nema jógúrt og AB mjólk, þar sem Krambúðin var dýrari. 

Mestur verðmunur var í undirflokkunum jógúrt og AB mjólk, þar sem verð í Krambúðinni voru að jafnaði 71% hærri en lægsta verð og í vegan vörum, þar sem verð í Krambúðinni og 10-11 voru að jafnaði 70% hærri en lægsta verð, og í flokknum mjólk og rjómi þar sem verð í 10-11 voru að jafnaði 71% hærri en lægsta verð. 

Fjarðarkaup var þriðja ódýrasta verslunin á heildina litið, og í öllum undirflokkum nema vegan vörum, þar sem hún var ódýrari en Krónan. 

DEILA