Í gær voru fjörutíu ár liðin síðan TF-RAN, þyrla Landhelgisgæslunnar, fórst í Jökulfjörðum með allri áhöfn. Slysið varð skömmu eftir flugtak þyrlunnar frá varðskipinu Óðni undan Kvíum á Jökulfjörðum að kvöldi 8. nóvember 1983.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar fór í sérstakt flug vestur í Jökulfirði gær þar sem þeirra sem fórust í þessu hörmulega slysi var minnst.
Í áhöfn þyrlunnar voru flugstjórarnir Björn Jónsson og Þórhallur Karlsson auk Sigurjóns Inga Sigurjónssonar stýrimanns og Bjarna Jóhannessonar flugvélstjóra.
Bjarni Jóhannsson, flugvélstjóri, og Björn Jónsson, flugstjóri.
Þórhallur Karlsson, flugstjóri.
Sigurjón Ingi Sigurjónsson, stýrimaður.
TF-RAN, kom í flugflota Landhelgisgæslunnar árið 1980. Þyrlan var sérhönnuð til leitar-, björgunar-, löggæslu- og eftirlitsstarfa. Hún var af gerðinni Sikorsky S-76 og fékk kallnúmerið TF-RAN.