Arnarlax: hefur ávallt greitt fyrir fengna þjónustu og mun gera áfram

Höfuðstöðvar Arnarlax eru á Bíldudal. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Fram kemur í yfirlýsingu frá Arnarlax vegna dóms Héraðsdóms Vestfjarða að fyrirtækið hafi verið sýknað af kröfu um greiðslu viðbótaraflagjalds af eldisfiski  á grundvelli breyttrar gjaldskrár sveitarfélagsins á árinu 2019. 

Í yfirlýsingunni segir að Arnarlax hafi ávallt greitt fyrir þá þjónustu sem fyrirtækið hefur fengið frá sveitarfélaginu og muni „að sjálfsögðu gera það áfram, þ.m.t. vegna notkunar fyrirtækisins á höfn Vesturbyggðar.“

Fram kemur að Arnarlax hefur greitt samtals 296 milljónum króna í hafnargjöld til hafnarsjóðs Vesturbyggðar á síðustu þremur árum. Í því samhengi bendir Arnarlax á að hagnaður hafnarsjóðs Vesturbyggðar síðastliðin 3 ár nemi tæpum 357 milljónum króna.

Um dóminn segir: „Um prófmál var að ræða þar sem efasemdir hafa verið uppi um að lagaheimild væri fyrir innheimtu aflagjalds af eldislaxi. Sveitarfélagið Vesturbyggð benti m.a. annars  sjálft á þann vafa í erindi til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þegar á árinu 2019 og í umsögn til Alþingis árið 2021. Mikilvægt er hvoru tveggja fyrir fyrirtæki og einstaklinga að innheimta opinberra aðila á gjöldum hafi fullnægjandi lagastoð. Með dómi Héraðsdóms Vest[fjarða] var skorið úr um þann vafa sem uppi var um lagastoð aflagjalds og staðfest að ekki er  heimild í lögum til innheimtu aflagjalds vegna eldisfisks.“

Í öðrum sveitarfélögum þar sem eldisfiski er landað hafa náðst samningar milli fyrirtækjanna og sveitarfélaganna segir í yfirlýsingunni. „Er það von Arnarlax að sú verði einnig raunin i tilfelli Vesturbyggðar.“

DEILA