Stöðugildum hjá ríkisstofnunum fjölgaði mest á Suðurnesjum og Suðurlandi en minnst á Vestfjörðum

Byggðastofnun hefur frá áramótum 2013/2014 gert árlega könnun á staðsetningu starfa á vegum ríkisins.

Með störfum á vegum ríkisins er átt við stöðugildi greidd af Fjársýslunni, stöðugildi hjá opinberum hlutafélögum og stofnunum og stöðugildi hjá stofnunum sem hafa meirihluta rekstrartekna sinna af fjárlögum.

Stöðugildi á vegum ríkisins voru 27.694 þann 31. desember 2022, þar af voru 18.015 (65%) skipuð af konum og 9.679 (35%) af körlum. Á árinu 2022 fjölgaði stöðugildum um 788 á landsvísu eða 2,9%.

Flest stöðugildi á vegum ríkisins eru staðsett á höfuðborgarsvæðinu, enda er meirihluti landsmanna búsettur þar. Hins vegar er hlutfall stöðugilda á höfuðborgarsvæðinu (70%) hærra en hlutfall landsmanna sem þar býr (64%).

Mest hlutfallsleg fjölgun stöðugilda varð á Suðurnesjum 10,7% og næst mest á Suðurlandi 9,1%.

Á Suðurnesjum fjölgaði mikið hjá ISAVIA og lögreglunni á Suðurnesjum sem má eflaust rekja til ferðaþjónustunnar eftir heimsfaraldur og nokkur fjölgun varð hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Á Suðurlandi fjölgaði meðal annars hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands og þjóðgarðinum á Þingvöllum.

Á Vestfjörðum fjölgaði um 6 eða 1,3% og þá fjölgaði um 5 erlendis sem var aukning um 7,4%.

Sjá skýrslu Byggðastofnunar

DEILA