Eins og kunnugt er strandaði rannsóknaskipið, Bjarni Sæmundsson, við Tálknafjörð að kveldi fimmtudagsins 21. september, síðastliðins.
Fumlaus og fagleg vinnubrögð í þeim aðstæðum sem sköpuðust urðu til þess að engin slys urðu á fólki og vel tókst til að bjarga skipinu af strandstað.
Búið er að skera úr skrokknum fyrir viðgerð.
Svo heppilega vildi til að skipið komst í slipp í Reykjavík mánudaginn 25. september til viðgerða. Verkinu miðar vel, vinna við viðgerðir er hafin og útvegun varahluta er lokið.
Gert er ráð fyrir að skipið verði komið aftur í rekstur í næstu viku.
Þá halda verkefni ársins áfram og þau kláruð samkvæmt settri rannsóknaáætlun. Hafrannsóknastofnun var tryggð fyrir þessu tjóni.