Áhöfnin á varðskipinu Freyju lagði út öldumælidufl við Straumnes á dögunum.
Vel gekk að koma duflinu á sinn stað. Þegar verkinu var lokið heyrðist vel í því auk þess sem það sendi upplýsingar inn á vef Vegagerðarinnar.
Meðfylgjandi myndband sem Guðmundur St. Valdimarsson tók sýnir hvernig vinna sem þessi fer fram.
Áhöfn varðskipsins Freyju