Nýjar reglur um íbúakosningu: ætlaðar til þess að auka lýðræðisþátttöku

Ísafjarðarhöfn. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Innviðaráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson hefur staðfest nýja reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga nr. 922/2023 og hefur hún verið birt í Stjórnartíðindum.

Reglugerðin fjallar um íbúakosningar á grundvelli 133. gr. sveitarstjórnarlaga sem ekki fara fram með rafrænum hætti. Reglugerðin hefur það markmið að einfalda og minnka umfang íbúakosninga sveitarfélaga og auka vald sveitarfélaga hvað kosningarétt varðar í ráðgefandi íbúakosningum. Reglugerðinni er jafnframt ætlað að auka lýðræðisþátttöku og sjálfbærni sveitarfélaga og þannig efla sveitarstjórnarstigið í heild segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Íbúakosningar sveitarfélaga eru af þrennum toga sem falla allar undir gildissvið reglugerðarinnar. Um er að ræða:

  • Kosningar í nefnd sem fer með málefni fyrir hluta sveitarfélags, sbr. 38. gr. sveitarstjórnarlaga
  • Sameiningakosningar sveitarfélaga, sbr. 119. gr. sveitarstjórnarlaga
  • Íbúakosningar um einstök málefni, sbr. 107. og 108. gr. sveitarstjórnarlaga

Sveitarstjórn getur nú ákveðið að halda íbúakosningu fyrir tiltekinn aldur íbúa, t.d. 16-20 ára eða 60 ára og eldri, fyrir erlenda ríkisborgara sem lögheimili eiga í sveitarfélaginu eða fyrir íbúa sem hafa lögheimili í tilteknum hluta sveitarfélagsins. Auk þess er gert ráð fyrir að framkvæmd og fyrirkomulag slíkra kosninga sé mun umfangsminna en um aðrar bindandi íbúakosningar sveitarfélaga. Með þessu er sveitarfélögum gefið tækifæri til að efla lýðræðivitund og þekkingu ungs fólks og auka lýðræðisþáttöku erlendra ríkisborgara.

DEILA