Kraftaverk í Álftafirði

Engin slys urðu í nótt þegar flutningabíll á leið vestur fór út af veginum í Álftafirði. Lítill farmur var í bílnum, um 8 tonn að talið er.
Að sögn heimildamanns Bæjarins besta var það ótrúleg mildi að bíllinn hafi ekki oltið og eiginlega kraftaverk. Ökumaðurinn mun hafa verið einn í bílnum.
Verið er að gera veg að bílnum og freista þess að ná honum upp á þjóðveginn.

DEILA