Íþróttahátíð grunnskólanna fór fram í gær í Bolungarvík.
Þátttakendur hátíðarinnar komu frá Bolungarvíkurkaupstað, Ísafjarðarbæ, Reykhólum, Tálknafirði, Bíldudal og Patreksfirði.
Hluti gestanna gisti í skólanum í nótt og tekur í dag þátt í skóladeginum á unglingastigi.
Frá árinu 2015 hefur keppnin farið þannig fram að nemendur allra skóla skrá sig á þær greinar sem þeir vilja taka þátt í og eftir það er þeim skipt í fjóra litahópa (gulur, rauður, grænn og blár) af íþróttakennara GB svo keppa þau saman sem lið og í gær var það rauða liðið sem sem sigraði.
Með þessu ná nemendur að kynnast innbyrðis og reyna um leið á samstarfshæfni sína.
Keppt var í sundblaki, sundi, bandý, körfubolta, fótbolta, skotbolta/dodgeball, borðtennis, skák og spurningakeppni.