Ísafjarðarbær: 10 m.kr. til Grunnskólans

Grunnskólinn á Ísafirði.

Bæjarráð hefur afgreitt til bæjarstjórnar viðauka við fjárhagsáætlun þar sem lagt er til að endurnýja eldunarofna í mötuneyti Grunnskólans á Ísafirði. Kostnaður er áætlaður 10 m.kr. Á móti hækkun útgjaldanna er lögð til jafnhá lækkun á fjárveitingum til vinnuskólans.

Í skýringum segir að svigrúm er í launaáætlun vinnuskólans vegna þess að ekki tókst að ráða flokkstjóra í sumar. Raunlaun vinnuskólans 2023 eru 7,7 m.kr. en áætlaðar voru 18,3 m.kr.

DEILA