Heimkaup sendir út á land með Dropp 

Gréta María og Hrólfur, ljósmyndari: Birgir Ísleifur

Samningur hefur verið undirritaður milli Heimkaupa og Dropp sem mun senda vörur Heimkaupa til viðskiptavina um allt land. Sendingaþjónusta Dropp er með 90 afhendingastaði hringinn í kringum landið og opnar þetta því möguleika fyrir fólk um allt land að versla beint við Heimkaup og fá afhent samdægurs eða næsta virka dag eftir því hvar á landinu fólk er.  

í fréttatilkynningu frá Heimkaup segir að Heimkaup reki í dag eina stærstu vefverslun á Íslandi og selur matvörur, snyrtivörur, gæludýrafóður, áfengi, sælgæti, vítamín og allskyns afþreyingavörur. Út október verður frítt að fá sent frá Heimkaup í gegnum Dropp en eftir það kostar hefðbundin sending 790 krónur. Hægt er að panta allar vörur í gegnum Dropp nema kælivörur en áfram verður hægt að panta slíkar vörur beint frá Heimkaup á stórhöfuðborgarsvæðnu og á afhendingastöðvar Pikkoló. 

Ahendingastaðir Dropp á Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Húnavatnssýslum þar sem nú er hægt er að sækja vörur frá Heimkaupum, næsta dag eftir að pantað er á www.heimkaup.is eru þessir:

Ísafjörður  – N1

Bolungavík – Orkan

Patreksfjörður -Vestur Restaurant

Grundarfjörður – Kjörbúðin

Ólafsvík – N1

Hvammstangi -Orkan

,,Við hjá Heimkaupum leggjum ofur áherslu á að létta fólkið lífið með því að gera innkaupin þægileg og skemmtileg hvort sem fólk býr í Hafnafirði, á Höfn eða á Húsavík. Það er því einstaklega ánægjulegt að hefja þetta samstarf með Dropp sem gerir mikliu fleirum kleift að versla hjá okkur á Heimkaup.is og fá afhent ekki seinna en næsta virka dag” segir Gréta María Grétarsdóttir, forstjóri Heimkaupa. 

,,Við hjá Dropp hlökkum til samstarfsins með Heimkaupum og þeirra viðskiptavinum sem nú hafa völ á að nálgast sínar sendingar á 90 afhendingarstöðum um allt land. Hjá Dropp leggjum við áherslu á skjóta þjónustu og að viðskiptavinir geti nálgast sendingar fljótt og örugglega á afhendingarstaði í sínu nágrenni” segir Hrólfur Andri Tómasson, framkvæmdastjóri Dropp.

DEILA