Hafrafell SU 65 var aflahæst krókaaflamarksbáta á fiskveiðiárinu 2022 / 2023 að því er kemur fram í frétt frá Landssambandi smábátaeigenda.
Heildarafli alls 2 509 tonn. Hafrafellið er 29,37 brt og 13,56 m að lengd.
Ótrúlegar aflatölur hjá ekki stærri bát.
Afli Hafrafells er sá mesti sem krókaaflamarksbátur hefur borið að landi á einu fiskveiðiári.
Á bátnum eru tvær fjögurra manna áhafnir sem róa tvær vikur í senn. Skipstjórar eru Andrés Pétursson og Ólafur Svanur Ingimundarson.