Hádegistónleikar í Hömrum – Halldór Smárason

Halldór Smárason. Mynd Marco Giugliarelli

Halldór Smárason er næstur í hádegistónleikaröð á 75 ára afmælisári Tónlistarskólans á Ísafirði.
Tónleikarnir verða á morgun föstudaginn 27. okt. kl. 12 í Hömrum og standa í 25 mínútur. Það er því upplagt að nota hádegishlé til að afla sér andlegrar næringar og skemmtunar í önn dagsins.

Aðgangur ókeypis.

DEILA