Gular og appelsínugular veðurviðvaranir fyrir morgundaginn

Á morgun og fram á miðvikudag er app­el­sínu­gul viðvör­un í gildi vegna veðurs á Norður­landi vestra, Norður­landi eystra og á Strönd­um. Gul viðvör­un er í gildi fyr­ir aðra lands­hluta. 

Búast má við norðvestan og norðan 15-23 m/s og rigningu eða slyddu, en snjókoma á heiðum, talsverð eða mikil úrkoma austantil á svæðinu.

Færð versnar því ört á fjallvegum og samgöngutruflanir eru líklegar segir í tilkynningu frá Veðurstofunni.

DEILA