Vesturbyggð: vilja efla rannsóknir og eftirlit með sjókvíaeldi

Frá Patreksfirði

Bæjarráð Vesturbyggðar ályktaði um strok úr sjókvíaeldi í Patreksfirði á síðasta fundi sínum. Þar segir að bæjarráðið gerir þær kröfur á eldisfyrirtæki að farið sé að lögum, innra eftirliti sé sinnt og leitað sé leiða til að koma í veg fyrir strok úr kvíum.

„Tillögur matvælaráðuneytisins að stefnumótun í lagareldi benda til þess nokkrar breytingar verði gerðar varðandi greinina m.a. að reglum um viðbrögð vegna stroka verði breytt og eftirlit verði eflt. Bæjarráð tekur vel í þær tillögur sem hafa verið kynntar og vonast til þess að unnið verði hratt og vel að fullvinnslu tillagnanna og innleiðingu með breytingum á lögum og reglum.“

Bæjarráð ítrekar kröfur sveitarfélagsins um að þáttur rannsóknar og eftirlits verður eflt og starfrækt á þeim svæðum sem sjókvíaeldi er til staðar.

DEILA