Verslun í dreifbýli – auglýst eftir umsóknum um styrki

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036 vegna verkefna sem tengjast aðgerð A.9 Verslun í dreifbýli. 

Markmið aðgerðarinnar er að styðja við rekstur dagvöruverslana í minni byggðarlögum fjarri stórum byggðakjörnum til að viðhalda mikilvægri grunnþjónustu.

Annars vegar er hægt að sækja um rekstrarstyrk og hins vegar styrk til búnaðarkaupa. 

Allt að 15 milljónum króna verður veitt vegna ársins 2024.

Umsækjendur skulu taka mið af úthlutunarreglum innviðaráðherra og auglýsingu um styrkina.

DEILA