Saga Hnífsdals: fjölmenni í útgáfuhófi

Hnífsdælingarnir Kristján Pálsson og Kristján Freyr Halldórsson, sem stjórnaði athöfninni. Myndir: Kristinn H. Gunnarsson.

Bókin Saga Hnífsdals er komin út. Útgáfuhóf var haldið í Félagsheimilinu í Hnífsdal á fimmtudaginn og annað í Eymundsson á Skólavörðustíg í Reykjavík í gær. Á báðum stöðum var fjölmenni mætt til þess að fagna útgáfu bókarinnar.

Bókin er mikið verk, rúmlega 500 blaðsíður og rekur sögu Hnífsdals fram til 1971 þegar Eyrarhreppur sameinaðist Ísafjarðarkaupstað. Höfundur er Kristján Pálsson, fyrrv. alþm og sagnfræðingur. Hann gefur sjálfur bókina út.

Í Landnámu er Hnífsdalur nefndur Skálavík og telur Kristján að nafnið sé dregið af mörgum skálum eða hvilftum í Bakkafjalli. Nafnið breyttist síðar , hugsanlega þegar Vatnsfirðingar eignuðust dalinn, en þeir áttu aðra Skálavík yst í Mjóafirði í Ísafjarðadjúpi.

Bókin skiptist í 22 kafla þar sem fjallað er um byggðina og mannlífið. Meðal annars er rakin ábúendasaga á Hnífsdalsjörðunum eftir 1861, íbúaþróun, vélaöldina, snjóflóðin í byrjun 20. aldar, verkalýðsbaráttuna og félagasamtökin.

Þar má nefna kvenfélagið Hvöt, ungmennafélög og slysavarnarsveit.

Í ávarpi sínu í Eymundsson gær sagði Kristján Pálsson frá því þegar kvenfélagið Hvöt samþykkti að láta söfnunarfé sitt til byggingar á kirkju í Hnífsdal ganga til þess að fjármagna bryggju en þeir sem fyrir því stóðu urðu uppinskroppa með fé. Varð það niðurstaðan þar sem bryggju þurfi og hún varð svo til þess að frystihúsið var síðar reist í Hnífsdal. En kirkjan er enn ókomin.

Bókabúðin Eymundsson á Skólavörðustíg var troðfullt af fólki sem komið var til þess að fagna bókinni og höfundi hennar. Þar mátti sjá marga Hnífsdælinga og aðra Vestfirðinga og fleiri velunnara svo sem Einar K. Guðfinnsson, fyrrv. ráðherra og Aðalbjörn Jóakimsson, útgerðarmann.

Kristján Pálsson og Ísfirðingurinn Örn Bárður Jónsson.

Kristján áritar bók sína. Til vinstri má sjá Björgvin Bjarnason, Bolungavík og til hægri sést í baksvipinn á Úlfari Þormóðssyni, rithöfundi í Reykjavík.

DEILA