Nú fara námskeiðin af stað hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða eitt af öðru.
Þann 19 september hefst námskeið fyrir þá sem vilja læra að prjóna.
Farið verður yfir undirstöðuatriði og helstu aðferðir í prjóni. Þátttakendur koma sjálfir með garn og prjóna og prjóna húfu. Stuttan hringprjón nr 4 ½ – Drops Nepal eða drops Alaska 2 dokkur.
Kennari er Fríða Rúnarsdóttir og tímarnir eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30-19:00.
Nú liggur nokkuð fyrir hvaða námsleiðir verða í boði hjá Fræðslumiðstöðinni í haust og um að gera fyrir fólk að kynna sér hvort þar leynast ekki tækifæri.
Ein af megin stoðunum í starfsemi Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða eru námsleiðir sem kenndar eru samkvæmt námskrám frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Námsleiðirnar eru stundum kallaðar annað tækifæri til náms en þær eru ætlaðar fullorðnu fólki á vinnumarkaði sem ekki hefur lokið framhaldsskólanámi. Í gegnum tíðina hafa margir hafa nýtt sér þessar námsleiðir til þess að byggja sig upp, eflast á vinnumarkaði eða komast aftur af stað í námi.
Flestar námsleiðir eru fjarkenndar og því aðgengilegar fólki hvar sem er.
Nánari upplýsingar eru á vefsíðu Fræðslumiðstöðvar.