Mjólkurkvóti: eftirspurn minni en framboð

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn í gær. Matvælaráðuneytinu bárust 28 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 24.

Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum AFURРsem er greiðslukerfi landbúnaðarins og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.

Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 379 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 350 kr./ltr.

Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) var alls 1.402.367 lítrar sem er mun meira en það greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) , en það voru 846.000 lítrar.

Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 225.000 lítrar að andvirði 78.750.000 kr. Það þýðir að aðeins 1/6 hluti þess sem til sölu var seldist.

Innan við 30% af því magni sem sóst var eftir voru bjóðendur reiðubúnir að greiða jafnvægisverðið eða hærra. Þeir bjóðendur sem buðu lægra verð fengu ekkert að kaupa.
Seljendur með tilboð á jafnvægisverði eða lægra eru 3 talsins og selja 16% af framboðnu magni.
Kaupendur með tilboð á jafnvægisverði eða hærra eru 9 talsins og fá 92% af eftirspurðu magni í sinn hlut.
Eitt tilboð barst sem uppfyllti skilyrði um forgangsúthlutun til nýliða.

Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum. Matvælaráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram.

DEILA