Kveðjumessa í Hólskirkju

Ásta Ingibjörg Pétursdóttir við athöfn á sjómannadaginn í Bolungavík. Mynd: Helgi Hjálmtýsson.

Sunnudaginn 3. september verður kveðjumessa í Hólskirkju kl 14.  Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir predikar og þjónar fyrir altari.  Ásta þjónaði sem sóknarprestur í Bolungarvík í rúm 10 ár.  Að aflokinni guðsþjónustu er kirkjugestum boðið  í messukaffi í Safnaðarheimilinu.  Athöfninni verður jafnframt varpað í safnaðarheimilið.

Starfandi prestum þjóðkirkjunnar fækkaði um einn á norðanverðum Vestfjörðum um síðustu áramót. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir, sóknarprestur í Bolungavík fluttist til innan Þjóðkirkjunnar og tók við nýju starfi prests í Laugardalnum í Reykjavík. Ásta tók við af sr Agnesi Sigurðardóttur þegar hún varð biskup.

Fjölnir Ásbjörnsson þjónustar Bolungavík og Hildur Inga Rúnarsdóttir tók við Súðavík. Öllum sóknum á norðanverðum Vestfjörðum hefur verið steypt saman í eitt prestakall, Ísafjarðarprestakall, og eru allir prestar þjónandi við það. Eftir breytinguna verða þrír prestar í prestakallinu í stað fjögurra áður. Sr Fjölnir hefur starfsstöð í Bolungavík er þar með skrifstofu.

DEILA