Kortleggja mengaðan jarðveg fyrir komandi kynslóðir

Kristín Kröyer, sérfræðingur í teymi mengunareftirlits,fer um landið og kynnir verkefnið.

Umhverfisstofnun hefur farið af stað með átak sem snýst um að safna upplýsingum frá almenningi um mengaðan jarðveg og koma þeim inn á kort. 

Upplýsingar um mengun í jarðvegi eru gríðarlega mikilvægar. Til dæmis til að koma í veg fyrir að viðkvæm byggð sé skipulögð á svæði þar sem hætta er á heilsuspillandi mengun. 

Það þarf að skrá eins mikið af upplýsingum um mengaðan jarðveg og hægt er áður en þær glatast.

„Við vonum innilega að fólk sem býr yfir þessum upplýsingum taki sér nokkrar mínútur og sendi okkur ábendingu. Það skiptir öllu fyrir komandi kynslóðir að vita hvar gæti leynst mengun í jarðveginum“ segir Kristín Kröyer umsjónaraðili verkefnisins.

Leitað er eftir ábendingum um alls konar svæði. Til dæmis:

Olía hefur lekið í jörð; Olía hefur verið grafin í jörð; Urðunarstaðir; Úrgangur hefur verið brenndur eða grafinn; Gamlar bensínstöðvar; Gamlar smurstöðvar; Brennur; Geymslur hættulegra efna þar sem líkur eru til að hættuleg efni hafi lekið út; Riðugrafir; Miltisbrandsgrafir; Skotvellir; Gamlar spennustöðvar; Viðhald og niðurrif skipa. 

Kristín verður á ferðinni í september og mun halda kynningarfundi um verkefnið. Þar getur fólk fengið nánari upplýsingar og aðstoð við að skrá inn ábendingar.

Hún verður á Ísafirði 27. september kl. 13-15 í húsnæði Umhverfisstofnunar að Silfurgötu 1.

DEILA