Ísafjarðarbær tekur jákvætt í að sameinast Árneshreppi

Frá Árneshreppi

Á fundi Ísafjarðarbæjar þann 4. september var tekin á dagskrá, að beiðni formanns bæjarráðs, ályktun hreppsnefndar Árneshrepps frá 9. ágúst 2023, þar sem lýst er yfir vilja til viðræðna við önnur sveitarfélög um sameiningu.

Bæjarráð tók jákvætt í ályktun hreppsnefndar Árneshrepps um vilja til sameiningar við önnur sveitarfélög og er Ísafjarðarbær opinn fyrir viðræðum um sameiningu sveitarfélaganna, enda liggja sveitrarfélögin saman, þótt í vegleysu sé.

DEILA