Gott að eldast -20 umsóknir 6 verða valdar

Tæplega 20 umsóknir bárust um þátttöku í þróunarverkefnum um samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið auglýstu í sumar eftir slíku samstarfi við sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir. 

Þróunarverkefnin eru hluti af aðgerðaáætluninni Gott að eldast  þar sem stjórnvöld taka utan um málefni eldra fólks með nýjum hætti.

Markmiðið verkefnanna er að finna góðar lausnir á samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk og flétta vandlega saman þá þætti sem ríkið sér annars vegar um og hins vegar sveitarfélögin.

Skilyrði fyrir þátttöku í þróunarverkefnunum var að heilbrigðisstofnun sem rekur heimahjúkrun og sveitarfélög sem reka stuðningsþjónustu væru sammála um að einn aðili ræki samþætta heimaþjónustu á tilteknu svæði; sveitarfélag, heilbrigðisstofnun eða að þau fælu í sameiningu þriðja aðila rekstur þjónustunnar. 

Frestur til að sækja um rann út í síðustu viku og skipuð hefur verið valnefnd til að meta umsóknirnar. Sex svæði verða valin til þátttöku. 

Allar aðgerðir miða að því að tryggja virkara og heilsuhraustara eldra fólki þjónustu sem stuðlar að því að sem flest þeirra séu þátttakendur í samfélaginu – sem allra lengst.

DEILA