Laugardaginn 9. september
Fararstjóri: Örn Smári Gíslason
Mæting kl. 9 við bæinn Fossa í Engidal
Gengið frá bænum Fossum upp samnefndan dal að Fossavatni. Þaðan er svo genginn drjúgur spölur að Langá og niður með henni að stöðvarhúsi. Hringnum lokað við upphafsstað göngunnar.
Vegalengd 4 – 5 km. 340 m hæð, áætlaður göngutími 4 – 5 klst.