Björgunaraðgerð í Gleiðarhjalla

Pilturinn var farþegi skemmtiferðaskips sem sést hér í bakgrunni

Eins og sagt var frá hér á föstudag var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna pilts í sjálfheldu í miklum bratta í Gleiðarhjalla fyrir ofan Ísafjörð.

Björgunarsveitarfólk á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar var sömuleiðis kallað út og hélt upp í fjallið að drengnum. 

Vegna aðstæðna var talið heppilegast að hífa piltinn um borð í þyrluna en afar krefjandi aðstæður voru á staðnum.

Þegar hífingar hófust voru um 26 metrar á sekúndu á staðnum og mikill bratti. Sigmaður þyrlunnar for niður með lykkju að piltinum og hífði hann í kjölfarið upp. Drengurinn var kaldur eftir veruna í fjallinu en laus við meiðsli.

Á meðfylgjandi myndum sem teknar voru af björgunarsveitarmönnum í fjallinu má sjá hve krefjandi aðstæðurnar voru fyrir björgunarfólk á vettvangi.

TF-GRO, þyrla Landhelgisgæslunnar, á staðnum. 

Sigmaður þyrlunnar fór niður með lykkju og hífði piltinn upp.

DEILA